


Nýlega kom út bókin Stjórnmál og Hagfræði eftir alþingisþingmanninn Tryggva Þór Herbertsson. Bókin er settlega in...
Í sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkjanna koma fram ýmsar hugmyndir gegn gerræðisvaldi erlendra kónga. Meðal þeirra hugmynda er að finna kjarnann í kenni...

Frjálshyggjumenn trúa því að hver einstaklingur hafi rétt til frelsis. Hann megi sinna hugðarefnum sínum og leita hamingjunnar á þann hátt sem hann sjálfur kýs. Hann megi þó ekki beita aðra menn ofbeldi. Að skerða frelsi annars manns er ofbeldi. Því má enginn skerða frelsi annarra, hvorki einn né í félagi við aðra.
Frjálshyggjufélagið var stofnað 10. ágúst 2002. Markmið félagsins eru að standa að fræðslu um frjálshyggju á Íslandi. Þó að félagið sé óháð öllum stjórnmálaflokkum nú og í framtíðinni, eru margir félagsmenn félagar í hefðbundnum stjórnmálaflokkum.
Formaður félagsins er Björn Jón Bragason
"Ábyrgð sem fólgin er í því að hver og einn einstaklingur beri ábyrgð á sjálfum sér og sínu fjárræði. Frjálshyggja er nefnilega ólík öðrum stefnum að þessu leyti hún býður einfaldlega ekki upp á eitt svar, einn sannleika eða eina tiltekna aðferð. Í frjálsu samfélagi eru margar tilraunir í gangi og margar kenningar á sveimi, enginn einn gjaldmiðill hentar öllum, engin ein vaxtastefna eða eitt algilt rekstrarform"
|
|