Viðskiptablaðamennirnir Bjarni Ólafsson og Ívar Páll Jónsson voru gestir Frjálshyggjufélagsins að kvöldi 8. september, en þá var haldinn fyrsti fundurinn í nýrri fundaröð sem ber yfirskriftina Teboð með frjálshyggjumönnum. Fundurinn var vel sóttur og ýmis áleitin málefni bar á góma, svo sem gjaldmiðilsmál, heilbrigðismál og hugmyndafræðin almennt.
Ánægjulegt var að sjá hversu líflegar umræður spunnust um ýmis grundvallaratriði frjálshyggjunnar og vonandi verður ekki síður líflegt á komandi fundum.“





