Áhugaverðar umræður

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
1998-11-04Frjálshyggjufélagið efndi til spjallfundar á Ölsmiðjunni Lækjargötu í gærkveldi, en umræðuefnið var pólitískur vettvangur frjálshyggjumanna. Jón Ragnar Ríkharðsson sjómaður og Vilhjálmur Andri Kjartansson blaðamaður fluttu stuttar framsögur, en síðan var orðið gefið laust. Sitt sýndist hverjum um pólitíkina og hvort rétt væri að frjálshyggjumenn beittu sér yfirhöfuð skipulega í pólitík. Hins vegar var það samdómaálit flestra fundarmanna að rödd frjálshyggjumanna yrði að heyrast betur og væri Frjálshyggjufélagið góður vettvangur til þess.
Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com