Er Marteinn Mosdal formaður UVG á Akureyri?

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
mosdalÉg rakst á athyglisverða grein Sindra Geirs Óskarssonar, þar sem hann leggur til að öll matvöruverslun í landinu verði færð á hendur ríkisvaldsins undir titli sem er skrumskæling á slagorði nasistaflokksins. Þó greinin sé athyglisverð, þá þýðir það ekki að tillaga þessa formanns Ungra Vinstri Grænna á Akureyri sé með öllu fáránleg.

Meginstefið í grein Sindra er að einhvers konar ”lýðræðisleg yfirsjón” með einokunarversluninni geti komið í stað þess aðhalds sem samkeppni veitir á markaði. Sá málflutningur er vafasamur af fjölmörgum ástæðum. Svo ég nefni eina ástæðu, þá hefði einokunarverslun ríkisins enga hvata til þess að mæta þörfum „viðskiptavina“ sinna. Til að mynda er kjarninn í kenningu Adam Smiths í Auðlegð þjóðanna að „ósýnileg hönd“ leiði menn til að vinna að almannahag, þegar þeir ætli sér aðeins sjálfir að vinna að eigin hag. Til þess að græða verði þeir að fullnægja þörfum annarra, það dugi ekki að framleiða vöru heldur þarf líka að finna henni kaupanda. Hin opinbera verslunarstofnun með vöru sem lýtur lögboðinni einokun þarf ekki að mæta þörfum „viðskiptavina“ sinna vel því þeir geta ekki leitað neitt annað. Það kemur ekki niður á hagsmunum neins skriffinnans að ekki sé nóg vöruúrval.

Þeir sem eru eldri að árum en Sindri ættu að muna þá tíð þegar vöruval var mun fábreyttara en það er nú og einokun kaupfélaga utan Reykjavíkur. Sindri tekur sérstaklega fram í grein sinni að hann vilji að þetta einokunar skipulag hygli íslenskum vörum. Þá vil ég benda honum á að það er ærin ástæða fyrir því að Íslendingar eru ekki stærstu appelsínuframleiðendur í heimi. Það er einfaldlega vegna þess að loftslag Íslands hentar ekki til appelsínuræktar. Hins vegar eigum við gjöful fiskimið og einbeitum starfsorku okkar að þeim því þar er mesti ábatinn. Ef hygla á íslenskum vörum sérstaklega þá er verið að hygla einstökum framleiðendum vara sem teldust annars óhagkvæmar til framleiðslu og fjárfestingu beint í starfsgreinar sem eru í raun óarðbærar. Þessi stefna verðlaunar fáa en arðrænir þorra almennings, svo notað sé tungutak sósíalista. Að ekki sé talað um það offramboð sem slíkt skapar, eða man einhver eftir smjörfjallinu?
Það er hins vegar ekki svo að Sindri sé einungis að leggja til eitthvað breytt afstætt rekstrarmynstur, heldur er hann að predika valdboð. Því flestum lögum ríkisvaldsins fylgja jú viðurlög. Sú stefna sem Sindri vegsamar felur í raun ekki bara í sér breytt rekstrarform heldur að allir þeir sem dirfast að reka matvöruverslun séu beittir viðurlögum enda væri einokun ríkisins á matvöruverslun einungis staðlausir stafir ef engin viðurlög fylgdu. Tillaga hans felur því óhjákvæmilega í sér mikla valdníðslu. Að loka skuli með valdi öllum ólöglegum fiskbúðum, kjötbúðum og berjast hart gegn þeim svo mikið sem dirfast til þess að selja grænar baunir. Þetta sýnir kannski fyrst og fremst að það er stutt í afturhaldshugmyndir hjá liðsmönnum VG. Þeir hafa jú sem kunnugt er lagst gegn hvalveiðum, stóriðiju, litasjónvarpi, bjór, EES-samningnum, internetinu, einkareknum útvarpsstöðvum, loftárásum NATO á Serbneskar dauðasveitir í Kosovo, þjóðaratkvæðagreiðslum og nú viðrar formaður einnar ungliðahreyfingar þeirra hugmyndir um einokunarverslun á matvælum.
Frjálslynt fólk trúir á það að sérhver maður hafi náttúrulegan rétt til lífs, frelsis og eigna. Sú trú á greinilega ekkert sammerkt með viðhörfum UVG sem virðast álíta að þeir séu af allt annari stétt en samborgarar sínir. Þeir álíta sig æðra setta og þess umkomna að segja öðrum fyrir um hvað þeim sé fyrir bestu, ekki ósvipað og dönsku einvaldskonungarnir sem sögðu: ”Vi alene vide”. – Við vitum betur en sauðsvartur almúginn. Þetta er vald sem Sindri gerir ráð fyrir að honum sé frjálst að beita en kjósendur geta ekki framselt nokkrum flokki slíkt alræðisvald af þeirri einföldu ástæðu að það var aldrei þeirra til að byrja með. Sá flokkur sem kennir sig við jöfnuð hefur í rauninni í hyggju að halda alþýðu manna í hlekkjum með stéttaskiptingu. Það er að segja með því að kljúfa borgaralegt samfélag í tvennt, hinar vinanndi stéttir og hinnar iðjulausu stéttar pólitískra embættismanna og bestu vina aðals. Eina skynsamlega ástæðan sem gæti legið að baki því að Sindri boðar svona valdníðslu og afturhald er að hann vonist sjálfur til að fá að tilheyra hinni iðjulausu stétt. Sjálfir jafnaðarmennirnir eru í raun stéttaróvinir! Borgaralegt samfélag er byggt á grunni náttúrulega og óframseljanlegra réttinda einstaklingsins. Þau réttindi hefur Vinstrihreyfingin grænt framboð einfaldlega engan áhuga á. Flokkslínan er ekki sæmandi í frjálsu samfélagi og það ber að varast að huga að flokknum sem hverju öðru stjórnmálaafli. Nær væri að telja flokkinn ógn við frjálst og borgaralegt samfélag og andófsafl gegn frelsisbaráttu fyrri tíma sem sigraðist á alræði „útvaldra“ konunga. Það ætti að hætta að dyljast fólki lengur að VG hefur ekki hug á neinu nema skapa hér á landi forréttindastétt valdra liðsmanna sinna í krafti gerræðisvalds.
Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com