Fyrir alþingi liggur nú stjórnarfrumvarp til umferðarlaga þess efnis að hækka skuli bílprófsaldur í átján ár. Helstu röksemdirnar fyrir þessari hækkun eru þær að 17 ára ungmenni séu hættulegri í umferðinni en þau sem eldri eru, valdi hlutfallslega flestum slysum og skerði þar með öryggi bifreiðaeigenda, gangandi fólks og annarra í umferðinni. Flutningsmenn frumvarpsins gera sér hins vegar ekki grein fyrir að vegið er að frelsi ungs fólks og er ábyrgðartilfinning þeirra virt að vettugi með samþykki þessa frumvarps.
Mikil rökleysa er að halda því fram að hækkun af þessu tagi hafi áhrif á framvindu umferðarslysa. Í raun er ekki verið að leysa eitt né neitt vandamál heldur einvörðungu verið að slá vandanum á frest. 18 ára bílstjórar eru jafnóreyndir í umferðinni og 17 ára bílstjórar. Ef flutningsmenn frumvarpsins væru samkvæmir sjálfum sér og rökum sínum væri jafneðlilegt að hækka bílprófsaldurinn í 19 eða jafnvel 20 ár. Nýir bílstjórar eru jú ætíð óreyndir bílstjórar, ekki satt?
Með frumvarpinu er að auki verið að fórna meiri hagsmunum fyrir minni. Ljóst er að eftirspurn eftir bílprófi og öllum þeim hlunnindum sem því fylgja er gríðarleg. Þessi eftirspurn kemur ekki að sjálfu sér þar eð hagsmunirnir eru það miklir og frelsið það dýrmætt. Ungt fólk vill axla ábyrgð á sjálfum sér og gjörðum sínum og krefst þess að meintir siðapostular verji tíma sínum í eitthvað hagnýtara og mikilvægra en að hafa vit fyrir öðrum.Ungt fólk á betra skilið en eintómt vantraust og vanvirðingu af hálfu stjórnvalda.
Stuðningsmenn frumvarpsins grípa til staðlausra röksemda og bendir fátt annað til þess en að hér á ferð sé ekkert annað en úrelt forsjárhyggja. Samfélag gegnsýrt af forsjárhyggju er ekki samfélag sem undirritaður kýs að lifa við enda hefur sagan sýnt að handstýring fárra aðila hefur gagnstæð áhrif miðað við það sem upphaflega ætlunin var. Ungt fólk hefur þegar þolað miklar frelsisskerðingar í nafni forsjárhyggju en nú er nóg komið. Undirritaður skorar á þingmenn að hafna þessu frumvarpi og stíga þess í stað í frelsisátt.
Höfundur er stjórnarmaður í Ungum frjálshyggjumönnum
Greinin birtist áður í Morgunblaðinu





