agstjórn hins opinbera á Íslandi einkennist af tvennu sem seint verður talið til fyrirmyndar: Skuldasöfnun og óráðsíu. Á fjármálanámskeiðum er skuldsettum einstaklingum ráðlagt að lækka útgjöld sín að tekjum, greiða niður skuldir, klippa kreditkortið og sýna ráðdeild í rekstri heimilisins. Stjórnmálamenn gera hið gagnstæða. Allir skattstofnar eru nú þandir til hins ítrasta – komið er á ofurskattheimtu í hnignandi hagkerfi. Nær öll sveitarfélög hafa hrint myndarlegum skattahækkunum í framkvæmd á þessu ári. Starfsmönnum fjölgar víða hjá hinu opinbera þótt þeim fækki þar sem þeirra er mest þörf, t.d. í heilbrigðiskerfinu. Nánast allir stjórnmálamenn virðast halda að þeir geti alltaf velt vandanum yfir á einhverja aðra, og halda því áfram að sólunda fé skattgreiðenda og dýru lánsfé eins og enginn sé morgundagurinn.
Þessi stefna getur ekki gengið til lengdar og hnígur að einni óhjákvæmilegri niðurstöðu: Allsherjar gjaldþroti okkar allra. Gegn því þarf að sporna. Ríkisstjórnin þarf að víkja. Hennar úrræði eru verri en engin. Ný ríkisstjórn þarf að taka við og hefja tiltekt í rekstri hins opinbera, sem hefur aldrei verið í verra ásigkomulagi. Skattbyrði þarf að létta og skattkerfið að einfaldast. Höft á verslun og viðskiptum (sérstaklega gjaldeyrishöftin) þurfa að víkja. Gjaldþrota fyrirtækjum eiga að fá að deyja drottni sínum í stað þess að skattgreiðendur séu látnir strengja til þeirra líflínu.
Mikil vinna bíður þeirrar ríkisstjórnar sem mun fyrr en síðar taka við af þeirri sem nú situr og kafsiglir hagkerfinu í skatta og skuldir. Ný ríkisstjórn þarf að vera viðbúin því að vera gagnrýnd harðlega af hinni vinstrisinnuðu blaðamannastétt og fráfarandi stjórnarþingmönnum. Þeirri gagnrýni þarf að svara með rökum og af yfirvegun en án þess að hún dragi kjark úr mönnum. Erfiðar ákvarðanir sem núverandi ríkisstjórn hefur slegið á frest þarf að taka.
Gjaldþrot allra Íslendinga og hins íslenska ríkis blasir við ef haldið er áfram á tortímandi braut núverandi ríkisstjórnar. Vonandi ber okkur gæfu til að víkja af þeirri braut.





