Ályktun um Magma Energy og HS Orku

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
magmaFrjálshyggjufélagið fagnar því að starfshópur ríkisstjórnarinnar leggist gegn takmörkun á eignarhaldi kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy á HS Orku.

Þessi niðurstaða starfshópsins þarf ekki að koma á óvart þar sem nefnd um erlenda fjárfestingu hafði áður komist að sömu niðurstöðu eftir að hafa farið yfir málið gaumgæfilega.

Andstaða ríkisstjórnarinnar við erlenda fjárfestingu er með eindæmum og jaðrar á köflum við útlendingahatur. Tilburðir hennar í Magma-málinu hafa gefið öðrum erlendum fjárfestum skýr skilaboð um að þeir séu ekki velkomnir hingað til lands en þegar hafa nokkur erlend stórfyrirtæki horfið frá áætlunum sínum um umsvif hér á landi.

Sitjandi ríkisstjórn ber sífellt fleiri einkenni ríkisstjórna í löndum þriðja heimsins. Niðurstaða fyrri nefndarinnar var stjórninni ekki að skapi og því ákveðið að skipa aðra sem gert var að komast að tiltekinni niðurstöðu, þ.e. að tryggja opinbert eignarhald á einkafyrirtæki.

Hugtakið „auðlindir í þjóðareign" verður sífellt meira áberandi í opinberri umræðu og var því meðal annars beitt gegn stuðningsmönnum atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum í sumar sem leið.

Rétt er að geta þess að hugtakið „þjóðareign" er merkingarlaust. Þjóð getur átt sína sögu og menningararfleifð en hún getur ekki átt neina eign að lögum. Aðeins ríkissjóður getur átt eign eins og aðrir lögaðilar og einstaklingar, en ríkissjóður verður seint talinn aðgengilegur almenningi.

Vopnin virðast endanlega hafa verið slegin úr höndum ríkisstjórnarinnar með niðurstöðu starfshópsins og áform um upptöku eigna Magma Energy bætast við aragrúa mála sem ríkisstjórninni hefur mistekist að ná fram.

Frjálshyggjufélagið kallar því eftir að Jóhanna Sigurðardóttir gangi á fund forseta, skili inn umboði sínu og efni til kosninga þegar í stað.

Hennar tími er löngu liðinn, en árið 1994 lét hún þess getið að hennar tími myndi koma. Með hverjum deginum sem líður virðist sem þessi yfirlýsing hennar hafi verið hrein og klár hótun.

Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com