Ályktun um staðgöngumæður

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Í ljósi umræðna að undanförnu um staðgöngumæður vill Frjálshyggjufélagið koma eftirfarandi á framfæri: Hver og einn einstaklingur er eini eigandi líkama síns. Einstaklingar skulu því hafa rétt til þess að semja um notkun líkama síns með þeim hætti sem þeir kjósa. Samningur um að kona gangi með frjóvgað egg annarrar konu er dæmi um slíkan samning.

Frjálshyggjufélagið álítur það ekki vera hlutverk ríkisins að banna konum að taka við frjóvguðu eggi annarrar konu, láta það þroskast í legi sínu og fæða barn sem síðan flytur til fjölskyldu sinnar. Gildismat þeirra sem eru á móti slíku á ekki að leiða í lög, frekar en gildismat einstaklinga um kvikmyndir, bækur og klæðaburð, svo dæmi séu nefnd.

Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com