Ungir frjálshyggjumenn leggjast eindregið gegn fyrirhugaðri hækkun bílprófsaldurs úr 17 árum í 18 ár, líkt og kveðið er á um í frumvarpi til til nýrra umferðarlaga. Helsturökin fyrir þessari hækkun eru þau að ökumenn á aldrinum 17 til 18 ára valdi hlutfallslega flestum slysum í umferðinni.Röksemdir af þessu tagi standast ekki skoðun. Næsta víst má telja að ef bílprófsaldur verður hækkaður í 18 ár muni ný rannsókn sýna að ökumenn á aldrinum 18 til 19 ára valdi flestum slysum í umferðinni. Þá mætti með sömu rökum halda því fram að rétt væri að hækka bílprófsaldurinn í 19 ár eða jafnvel 20 og svo koll af kolli. Færni ökumanna til aksturs verður betri með tíð og tíma og því er ekki óeðlilegt að slysatíðni sé hæst í hópi yngstu ökumannanna.
Sífellt er vegið að réttindum ungs fólks og það rænt ábyrgðartilfinningu sem er nauðsynlegur þáttur í þroska sérhvers einstaklings. Eðlilegra væri að leyfa ungmennum að hefja æfingaakstur fyrr en nú er, til að mynda á ákveðnum svæðum á ákveðnum tímum eins og þekkist í Bandaríkjunum. Markmiðið hlýtur að vera að auka færni ungmenna í akstri – fremur en að beita gamaldags forsjárhyggjuaðferðum





