For a New Liberty

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Í bókinni “For a New Liberty” setur frjálshyggjumaðurinn Murray N. Rothbard fram heimspeki og siðfræði frjálshyggjunnar á aðgengilegan og einfaldan máta. Hann hefur bókina á því að útskýra friðsemdarregluna (að valdi skuli ekki beitt að fyrra bragði). Hann útskýrir afhverju það er ákjósanleg regla til þess að haga lífi sínu, hvort tveggja á siðlegum grunni og í ljósi nytjahyggju.

Eftir að höfundurinn setur fram friðsemdarlögmálið, þá beitir hann því á öll helstu svið mannlegs samfélags. Hann tekur ólík og skemmtileg dæmi eins og saknæmi þess að efna til uppþota.  Bókin er yfirgripsmikil en hún fjallar t.d. um menntun, utanríkisstefnu og peningastefnu. Og rekur hvernig ríkisinngrip og valdbeiting sem bera ábyrgð á nánast öllu sem úrskeiðis hefur farið í vestrænum samfélögum á tuttugustu öldinni.

Rothbard fjallar um hvernig “hægri-vinstri” stjórnmál geri lítið annað en að afvegaleiða umræðuna. Að sú orðræða dylji  sannleikann um að það eina sem skiptir máli þessum efni er lítil ríkisafskipti eða mikil. Það er að segja að spurningin sé ekki hvort við ætlum til hægri eða vinstri, heldur fremur upp eða niður!

Fjörug og skemmtileg lesning fyrir alla þá sem vilja ögra eigin viðhorfum. Bókin er góður inngangur að frjálshyggjustefnunni og hentar vel þeim sem vilja fræðast um hana í sínu beittasta formi.

Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com