Nýlega kom út bókin Peningar, Græðgi og Guð eftir Jay W. Richards. Richards er doktor í heimspeki og trúarbragðafræði við Princeton-háskóla. Í bók sinni fjallar Richards um það hvort kapítalisminn gangi gegn kristnu siðferði. Hann tekur fyrir alls kyns lesti eins og græðgi og sjálfselsku og leitast svara við hvort þeir séu í raun undirstaða kapítalismans.
Bókinni var dreift til allra alþingismanna sem og flestra presta og fjölmiðlamanna. Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, gerðist svo almennilegur að auglýsa bókina (sem og eigin þröngsýni) með því að henda henni í ruslið og taka af því mynd, sem hann birti á bloggsíðu sinni. Hann bar fyrir sig að inntak bókarinnar væri einhverskonar helgimynd af kapítalismanum.
Þessir fordómar eru hins vegar í engu samræmi við innihald bókarinnar. Þvert á móti þá leggur Richards áherslu á að kapítalisminn sé einungis jarðneskur. Kapítalismanum sé hins vegar stillt upp við hliðina á paradísum alræðissinna sem eigi sér ekki fótfestu í raunveruleikanum. Þessi samanburður sé ósanngjarn því þessar svokölluðu paradísir hafa aldrei reynst betur í framkvæmd en kapítalisminn. Það er ein af átta mýtum sem Richards flettir ofan af í bók sinni.
Í stuttu máli mætti segja að málflutningur Richards sé á þá leið að kapítalisminn sé einungis mannanna verk, en ekki verk Guðs. Að sama skapi þá sé sósíalisminn heldur ekki verk djöfulsins. Vísast til hafa einhverjir fælst frá því að lesa bókina af ótta við að hún væri uppfull af trúarofstæki. Svo er hins vegar ekki, því þrátt fyrir krassandi titilinn þá er inntak bókarinnar hvorki ofstækisfullt né yfirgnæfandi.
Helsti kostur bókarinnar er að hún er vel skrifuð. Richards setur fram málflutning sinn á einfaldan og skýran hátt. Peningar, Græðgi og Guð er létt lesning en ekki torvelt fræðirit. Þrátt fyrir sérstök viðhorf Richards á ýmsum öðrum hlutum þá hitti hann naglann á höfuðið með þessari bók sinni. Það er vel hægt að fallast á hluta málflutnings hans án þess að taka hann allan upp.
Hvatamaður af útgáfu bókarinnar var Skafti Harðarson. Hann á lof skilið fyrir að stuðla að fjölbreyttri málsvörn fyrir atvinnufrelsi. Richards beitir mýkri röksemdafærslum en margir aðrir talsmenn kapítalismans. Peningar, Græðgi og Guð er örugglega gott mótvægi við Uppsprettuna eftir Ayn Rand sem kom einnig nýlega út í íslenskri þýðingu.





