Samþykkt á stofnfundi, 10. ágúst 2002. Með breytingum á aðalfundi, 27. september 2003. Með breytingum á aðalfundi, 25. september 2004.
1. grein
Félagið heitir Frjálshyggjufélagið. Lögheimili þess er í Reykjavík.
2. grein
Markmið félagsins er að stuðla að frelsi einstaklingsins.
3. grein
Félagið hyggst vinna að markmiði sínu með fræðslu um hugmyndafræði frjálshyggjunnar.
4. grein
Allir, 14 ára og eldri, geta sótt um inngöngu í félagið.
5. grein
Umsækjendur þurfa að vera samþykktir af stjórn með meira en helmingi atkvæða til að fá inngöngu.
6. grein
Stjórn félagsins getur vikið úr því hverjum þeim sem að hennar áliti brýtur lög þess eða vinnur gegn stefnu þess. Til þess þarf 2/3 atkvæða stjórnar.
7. grein
Málefni félagsins annast stjórn þess, almennir fundir og nefndir sem þessir aðilar kjósa sér til aðstoðar.
8. grein
Í stjórn félagsins sitja átján menn að formanni meðtöldum. Stjórn skal velja sér varaformann, gjaldkera og ritara. Stjórnin er kosin á aðalfundi félagsins til eins árs í senn. Formaður skal kjörinn sérstaklega, á undan stjórn. Framboð til formanns og stjórnar skulu hafa borist stjórn félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Stjórn félagsins skal auglýsa um leið og aðalfundur er auglýstur, hvar og hvenær framboðum skal skilað. Ef ekki er sjálfkjörið skal kosning vera skrifleg. Á aðalfundi skal kjósa tvo endurskoðendur og einn til vara. Framboð til endurskoðenda skal berast stjórn félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Ef ekki er sjálfkjörið skal fundurinn skipa þriggja manna kjörnefnd sem sér um gerð kjörseðla, úrskurð um vafaatkvæði, stjórn talningar og framkvæmd kosninga að öðru leyti.
9. grein
Stjórnarfundi skal halda svo oft sem þurfa þykir. Formaður boðar til þeirra og stýrir þeim nema annað sé ákveðið. Stjórnarfundi skal boða með tveggja sólarhringa fyrirvara. Bregða má frá þeirri reglu ef allir stjórnarmenn samþykkja. Stjórnarfundur er löglegur ef meirihluti stjórnarmanna situr fund. Óski tveir stjórnarmenn eftir stjórnarfundi ber að halda hann innan viku frá því formanni berst slík ósk skriflega. Verði atkvæði jöfn í atkvæðagreiðslu á stjórnarfundi, ræður atkvæði formanns.
10. grein
Aðalfund félagsins skal halda árlega og ekki síðar en 1. desember og skal boða til hans með minnst tveggja vikna fyrirvara. Allar kosningar á aðalfundi skulu vera skriflegar sé þess óskað. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum mála og kjöri á aðalfundinum, nema við breytingar á lögum eins og fjallað eru um í 15. grein. Verði atkvæði jöfn, ræður hlutkesti. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir: 1. Skýrsla stjórnar og endurskoðaðir reikningar 2. Lagabreytingar 3. Ályktanir fundarins 4. Kosning formanns, stjórnar, tveggja endurskoðenda og eins til vara 5. Önnur mál Samþykki aðalfundar þarf til við breytingu á röðun dagskrár.
11. grein
Stjórn félagsins er heimilt að boða aukafund hvenær sem er ársins, þar sem hægt er að taka fyrir sömu dagskrárliði og á aðalfundi. Ekki er þó kosið um formann, stjórn og endurskoðendur nema einhver hafi hætt störfum. Um boðun og framkvæmd aukafundar gilda sömu reglur og vegna aðalfundar.
12. grein
Heimilt er að stofna félög sem starfa innan Frjálshyggjufélagsins, með fulltingi meirihluta stjórnar. Stjórn getur lagt slík félög niður með meirihluta atkvæða.
13. grein
Árgjald félagsmanna er frjálst.
14. grein
Reikningstímabil félagsins er tíminn milli aðalfunda.
15. grein
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þarf 2/3 atkvæða allra fundarmanna til að breytingin nái fram að ganga.
16. grein
Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn félagsins eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir aðalfund.
17. grein
Lög þessi öðlast þegar gildi.






