


Þriðjudagskvöldið 28. febrúar heldur Finnur Árnason, forstjóri Haga, erindi á fundi Frjálshyggjufélagsins um málefni verslunarinnar.
Fundurinn verður haldinn á 2. hæð veitingahússins Sólons við Bankastræti og hefst klukkan 20:00. Eftir erindi Finns verða almennar umræður.
Finnur hefur meðal annars andmælt tollum á landbúnaðarvörum. Ofurtollar og takmarkanir á innflutningi á kjötvörum þegar skortur ríkti hér skilaði sér út í verðlag og vísitölur og hækkaði skuldir heimilanna um 7,6 milljarða króna, að sögn Finns.